tirsdag den 27. januar 2009

Baka baka

Það er sko alltaf gaman að baka pitsu. Eva er reyndar pínu lúmsk, hún borðar allt pepperoniið á meðan hún er að setja á pitsuna. Eitt á pitsu, eitt í munn.
Allt fínt að frétta af okkur í DK, ég er ekki enn komin í gang með verkefnaskrifin, er voða eitthvað löt þessa dagana. Vantar smá spark í rassinn.
Hugurinn er voða mikið á Íslandi þessa dagana, ferlegt að vera með heimþrá, og sérstaklega þegar ástandið er svona slæmt og maður veit að það er vitleysa að huga að heimferð. Jú og svo höfum við það mjög gott hérna...

Kveð að sinni
Posted by Picasa

2 kommentarer:

Anonym sagde ...

Þau eru aldeilis að gera það gott í pizzubakstrinum þessar dúllur :) Nú er jólasnjórinn loksins kominn hingað til Reykjavíkur það var allt þakið í þykku lagi af snjó í morgun hús, bílar og allar greinar á trjánum. Fallegt umhverfi þó allt sé í steik í þjóðmálunum hehe. stórt knús til ykkar allra Dóra mín. kv. Bríet

Dóra sagde ...

Það verður allavega aldrei tekið frá Íslandi,að það er lang fallegasta landið...